news

Vikufrétt 19. -22. apríl

22. 04. 2022

Þessi vika er stutt þar sem annar í páskum var á mánudaginn og mikið var nú gaman að hitta alla aftur eftir páskafrí.

Einnig var sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn og óskum við öllum gleðilegs sumars

Nú höfum við klárað að fara í gegnum Lubba bókina okkar góðu og öll málhljóðin hafa fengið sína viku í vetur. Nú erum við byrjuð að fara í upprifjun á hljóðunum og tökum fyrir 1-2 hljóð í morgunstundinni okkar.

Hér má sjá mynd af stafaveggnum okkar og öll hljóðin sem við höfum verið að æfa í vetur sem hangir inni á deild hjá okkur.

Börnin fóru öll í hreyfisalinn á þriðjudaginn og skemmtu sér þar vel að vanda hjá Ástu.

Við höfum fengið alls konar veður í vikunni en skemmtum okkur vel og fórum á miðvikudaginn öll út á stærra svæðið að leika okkur.

Takk fyrir vikuna

© 2016 - Karellen