Miðvikudagsfrétt Krumma
18. 02. 2026
Góðan daginn
Í þessari stuttu viku var Lubbi að kenna okkur málhljóðið P
Við unnum með þemað okkar í febrúar
Við vorum að leira, lita og leika okkur.
Á mánudaginn var bolludagur og flestir voru til í að smakka bollu. Í gær þriðjudag var sprengidagur og í dag öskudag var mikið um að vera. Við slógum köttinn úr tunnunni og fengum pínu snakk í poka. Flestir voru í búning eða náttfötum.
Takk fyrir þessa viku og eigið frábæra langa helgi