news

Ný skólanámskrá gefin út fyrir Heilsuleikskólann Skógarás

14. 04. 2026

Heilsuleikskólinn Skógarás hefur gefið út nýja skólanámskrá sem gildir fyrir árin 2026–2030. Námskráin er fjórða útgáfa skólans og endurspeglar metnaðarfullt og faglegt starf sem byggir á Aðalnámskrá leikskóla, menntastefnu Reykjanesbæjar og heilsueflandi áherslum skólans.

Við endurskoðun námskrárinnar var lögð rík áhersla á leik, vellíðan, heildrænan þroska barna og gott samstarf við foreldra. Starfsfólk leikskólans, foreldrar og börn tóku virkan þátt í mótun hennar og eru sjónarmið þeirra sýnileg víða í námskránni.

Skólanámskráin er nú aðgengileg á heimasíðu skólans.

Skólanámskrá Skógaráss 2026-2030

© 2016 - Karellen