Föstudagsfrétt krumma
20. 03. 2026
Góðan daginn
Við erum búin að bralla ýmislegt í þessari viku. Lubbi var að kenna okkur málhljóðið Ö
Orðaforðaþemað okkar var á vísum stað, umhverfi út og fatnaður. Við settum hann Tuma upp og æfum okkur í að klæða hann í útiföt eftir veðri á hverjum degi.
Blæstund var auðvitað á sínum stað.
Svo er tannverndarvika í þessari viku og fórum við og hittum tannálfana Tinnu og Tryggva í salnum. Þangað mætti líka tönn sem þurfti að bursta.
Á miðvikudaginn kom norn í heimsókn fljúgandi á kústi og las fyrir okkur sögu um norn.
Á fimmtudaginn var mottumars og kennarar mættu með skegg og í skyrtum jú og einstaka barn.
í dag fórum við og horfðum á myndband um Karíus og Baktus í salnum.
Við spreyjuðum og máluðum úti.
Höfðum opið á milli Kríu og Krumma og margt fleira sem við gerðum.
Takk fyrir skemmtilega viku og eigið góða helgi.




