news

Föstudagsfrétt Krumma

06. 02. 2026

Góðan daginn

Í þessari viku vorum við með upprifjun á fjórum síðustu málhljóðum í Lubba.

Við byrjuðum með nýtt mánaðarþema en þð er form, stærðir og mynstur.

Á mánudaginn héldum við upp á afmælið hans Blæs bangsa og tóku allir bangsann sinn með í hreyfisal þar sem við sungum vinalög og afmælissönginn.

Á miðvikudaginn fórum við í vettvangsferð og krakkarnir stóðu sig rosalega vel að ganga nokkuð stóran hring. Þau fengu svo að fara á leiksvæði hér stutt frá og leika sér áður en haldið var aftur í leikskólann að borða hádeigisverð.

í dag föstudag er dagur leikskólans og við héldum upp á hann með því að hitta vini okkar á leikskólanum í salnum og sungum nokkur lög.

Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi.

49383-webservice-6985ea28d3f8c.jpg

49383-webservice-6985ea442a844.jpg

49383-webservice-6985ea4d8660d.jpg

49383-webservice-6985e9e604f4a.jpg

49383-webservice-6985ea2083b22.jpg

49383-webservice-6985e9dda1df7.jpg

49383-webservice-6985e9ed2724c.jpg

© 2016 - Karellen