Föstudagsfrétt
10. 04. 2026
Góðan daginn
Í vikunni var Lubbi að kenna okkur málhjóðið Þ
Við byrjuðum með nýtt þema í þessum mánuði og það er: Farartæki og umhverfi úti.
í dag föstudag vorum við með opið á milli fyrir Kríu og Krumma.
Við erum búin að fara í Hreyfisal, hlusta á sögur og bækur.
Við vorum aðeins að vinna með í vikunni að bera virðingu fyrir öðrum og að hver og einn eigi sinn líkama og má setja mörk fyrir sig. Við þurfum alltaf leyfi til að leiða aðra eða knúsa og það má segja nei ef við erum ekki í stuði núna fyrir snertingu. Við megum aldrei vera vond við aðra eins og að hrinda eða lemja. Engum finnst það gott.
Takk fyrir vikuna og góða helgi


