Miðvikudagsfrétt Kríu
18. 02. 2026
Góðan dag
Í þessari viku lærðum við um bókstafinn “Uu”.
Þetta var heldur stutt vika hjá okkur núna en það vantaði sko ekki upp á skemmtunina.
Á mánudaginn var Bolludagur og í tilefni af því fengum við fiskibollur í hádeginu og svo Bolludagsbollur með nónhressingunni.
Á þriðjudaginn var Sprengidagur og þá fengum við saltkjöt og baunasúpu með grænmeti í hádegismatinn.
Í dag, miðvikudag, er Öskudagur. Þá mega nemendur og kennarar mæta í búning í leikskólann. Það voru heldur betur margir flottir búningar að sjá.
Takk fyrir skemmtilega viku, hafið það gott í fríinu og sjáumst á mánudaginn.



