Föstudagsfrétt Kríu
17. 04. 2026
Góðan dag.
Í þessari viku lærðum við um bókstafinn „Pp“.
Það var frekar hefðbundið starf hjá okkur í vikunni. Ásta fór með börnin í hreyfsalinn þar sem þau fengu að hlaupa um og skemmta sér. Við lærðum um bókstaf vikunnar með því að skoða hluti sem byrja á bókstafnum „P“ eins og t.d. páfagaukur og pera.
Á föstudögum opnum við á milli deildanna Krumma og Kríu á milli kl. 9 og 10 og börnin fá að leika saman. Þeim finnst mjög spennandi að rápa á milli deilda og skoða það sem er í boði á hinni deildinni.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.

