news

Föstudagsfrétt

08. 04. 2022

Góðan daginn

Það er búið að vera mikið fjör hjá okkur þessa vikuna, lengri útivera en venjulega því veðrið hefur verið gott þó það sé búið að vera örlítið kalt.

Við erum búin að vera í upprifjun hjá Lubba þessa vikuna og rifja upp A og M.

Við áttum mjög notalega stund með Blæ bangsanum okkar á miðvikudaginn

Við vorum að skreyta pappamassa hringina okkar í vikunni.

Á fimmtudaginn og föstudaginn föndruðum við smá páskaunga sem krakkarnir taka með sér heim í dag.

Í dag föstudag, fórum við öll á svæðið hjá eldri krökkunum og prófuðum nýja eldstæðið okkar og poppuðum. Það var rosalega mikið stuð að borða popp úti við eldinn og alveg pottþétt eitthvað sem verður gert aftur.

Takk fyrir daginn og vikuna

Góða helgi og gleðilega páska


© 2016 - Karellen