news

Fimmtudagsfrétt Kríu

15. 01. 2026

Góðan dag.

Bókstafir vikunnar eru “ Íí/Ýý „.

Í þessari viku opnaði hreyfisalurinn aftur eftir jólafrí og því var mikið fagnað. Börnin hafa svo sannarlega gaman af uppátækjunum sem Ásta býður uppá þar.

Það voru nokkrir dagar í vikunni þar sem var hreinlega of kalt fyrir okkur til að far út en við létum það ekki stoppa okkur. Þá fundum við okkur bara skemmtilegt að gera saman inni, þar æa meðal kubba, púsla, lita og margt fleira.

En svo komu loksins dagar þar sem hægt var að fara út. Þá fóru nokkrir í gönguferð í kringum leikskólann með kennara.

Takk fyrir frábæra viku og góða helgi.

© 2016 - Karellen