news

Síðasta föstudagfrétt febrúar

27. 02. 2026

Góðan og gleðilegan síðasta föstudag febrúarmánaðar.

Spenningurinn fyrir vetrarfríinu í síðstu viku var svo mikill að það steingleymdist að setja inn frétt vikunnar, eða kannski var það gleðin yfir öskudeginum. Að vanda var haldið upp á öskudaginn með pompi á prakt hér á Lóu sem og í leikskólanum öllum. Við vorum með opið milli Lóu og Spóa ásamt danspartý í hreyfisalnum um morguninn, Eftir góða útiveru fengum við svo dýrindis pizzu í hádegismatinn sem börnin gerðu góð skil. Eftir hádegi slógum við svo köttinn úr tunnunni og var mikil einbeiting í hópnum að reyna að slá í tunnuna svo hægt væri að sjá hvaða góðgæti leyndist þar inni. Það var svo við mikinn fögnuð að tunnan sprakk og úr streymdu girnilegir snakkpokar. Í síðustu viku kíkti eldri árgangurinn í heimsókn í íþróttatíma í Háaleitisskóla sem var mikið fjör og mikil gleði.

Eftir dásamlegt vetrarfrí mættu allir endurnærðir og klárir í að læra meira í dag en í gær. Veturkonungur minnti okkur svo sannarlega á að veðrið á landinu okkar fríða er óútreiknanlegt og skjótt skipast veður í lofti, en við fengum eiginlega öll þau veðurbrigði sem tilheyra vetrinum í þessari viku. Í byrjun vikunnar fengum við dásamlega milt og fallegt veður. Á miðvikudaginn varð einskær gleði í barnahópnum þegar snjórinn loksins lét sjá sig eftir langa bið. Þá var ráðist í að gera snjókalla, snjóbolta og renna sér á rassinum í snjónum. Gleðin var aðeins minni daginn eftir þegar mesti snjórinn var horfinn og snjókallarnir orðnir að engu. Leikskólavikunni lauk svo á leiðindar skafrenningi og roki.

Í febrúar höfum við verið að vinna með þemað iðju og unnið verkefni tengd því. Iðja er allt sem að við gerum frá því að klæða okkur og bursta tennurnar, elda matinn, fara í búðina eða mæta í vinnuna. Hér á Lóu einbeittum við okkur að því sem við gerum í leikskólanum eins og að læra, fara í hreyfingu hjá Ástu, klæða okkur í útifötin, leika okkur og svo mætti lengi telja. Í mars verður þemað stærðfræði, form og liti þar sem við munum einbeita okkur að alls kyns stærðfræðihugtökum og alla þá liti sem lífið hefur að geyma.

Lubbi er búinn að kenna okkur tvenn málhljóð síðan í síðustu frétt. Fyrst var það samhljóðinn K og sagði hann okkur söguna af dýrum sem kepptust við að kanna landið. Krummi og kind kíktu á kaffihús í Kópavogi, kanína og kýr fengu sér hressingu á Kópaskeri. Kisa og könguló fengu sér kex og kók með klökum á Kili, kenjóttur kalkúnn vildi bara kjöt og kartöflur með kokteilsósu og kræf kría flaug til Kaupmannahafnar í kransaköku og konfekt. Þessa vikunna erum við svo búin að vera að læra sérhljóðan Ö. Lubbi sagði söguna um Örn sem fór í ferðalag austur í Öræfasveit. Þau ægðu við Öræfajökul og gæddu sér á hrökkbrauði og kökusneiðum. Í næstu viku ætlar Lubbi svo að kenna okkur sérhljóðið Á og mun Lubbi örugglega segja okkur skemmtilega sögu sem tengist því.

Við erum að skoða matarmenninguna okkar á Lóu og til að mynda höfum við nokkrum sinnum tekið skoðanakönnun þar sem börnin merkja sjálf við hvort þeim hafi fundist þau borða mikið, miðlungs eða lítið. Það hefur verið bæði fróðlegt og skemmtilegt að sjá hvernig börnin meta sig sjálf miðað við hvernig við fullorðnu myndum meta þau.

Við enduðum svo vikuna á glitrandi degi til að sýna einstökum börnum með sjaldgæfa sjúkdóma stuðning. Auk þess að klæðast glitrandi fatnaði héldum við sameiginlega söngstund í salnum þar sem við sungum nokkur skemmtileg lög við undirleik hennar Birtu á Spóa.

Góða helgi og við sjáumst hress í mars.

© 2016 - Karellen