Gleðifrétt frá Lóu
26. 03. 2026
Gleðilegan fimmtudag
Hér á Lóu er búið að vera mikið stuð að vanda. Við notuðum góða veðrið mjög vel og fórum meðal annars í skemmtilegar vettvangsferðir og lékum okkur í náttúrunni hjá Víkingaheimum við mikla gleði barnanna. Ásta okkar náði í snjóskóna okkar og fengu þau sem vildu að spreyta sig á þeim við mikla gleði.

Lubbi kenndi okkur Ð og komumst við að því að það er ekkert orð sem byrjar á Ð heldur er það alltaf annað hvort í miðjunni á orði eða aftast. Viö heyrðum söguna um hann Daða sem var með fjölskyldunni sinni í bústað á Vaðlaheiði þar sem hann fékk lúðu í matinn þrátt fyrir það að vilja bara brauð að borða. En hann tók gleði sína á ný þegar hann heyrði að hann fengi snúð í eftirrétt ef hann yrði góður og duglegur að borða lúðuna sína.

Vikan okkar endaði svo á kósý innidegi vegna vonskuveðurs sem gekk yfir landið en við létum það alls ekki á okkur fá og áttum frábæran dag. Við bjuggum til kanínur, lékum okkur saman og gerðum saman skemmtilega tilraun með snjó, vatn og vatnsliti við mikla kátínu. Við hlustuðum líka á söguna um Línu Langsokk þar sem hún og herra Niels kynnast nýju nágrönnunum sínum þeim Tomma og Önnu. Gleðilega páska frá okkur á Lóu sjáumst hress og kát þriðjudaginn 7.apríl :)
