news

Föstudagsfrétt fra Lóu

08. 05. 2026

Góðan og gleðilegan föstudag.

Vikan á Lóu er búin að vera frábær og full af fjöri. Sköpun er búin að vera í fyrirrúmi, það er búið að gera feiknamörg listaverk bæði úti og inni, mikið sungið og heilu heimarnir búnir til úr ýmiskonar kubbum. Farið var í vettvangsferðir, yngri árgangurinn fór að skoða listasýninguna í Duushúsum og heimsóttu skessuna í hellinn sinn. Eldri árgangurinn fór svo í heimsóknir í heimaskóla nokkurra útskriftarefna sem kveðja okkur í sumar.

Lubbi er kominn í sumarfrí en við höfum verið að rifja upp málhljóðin með ýmsum hætti til dæmis með sögum, þrautum og söng. Börnin eru mjög dugleg að finna skemmtilegar leiðir til þess að æfa sig í bæði bókstöfum og tölustöfum. Þau hafa verið skrifa upp orð af blöðum eða eitthvað sem þau hafa beðið um að láta skrifa fyrir sig, reiknað alls konar reiknisdæmi og teiknað parís á útisvæðið. í Vettvangsferðunum okkar er líka mikið spjallað og spáð í öllu sem við sjáum og heyrum í ferðinni.

Við bíðum ennþá spennt eftir vorinu svo hægt verði að leika úti í bara úlpu húfu og skóm, en veðrið er ennþá mjög útreiknanlegt og minnum við því á að það er mikilvægt að börnin komi með útifatnað sem hægt er að nota í alls kyns veðri. Við förum út í næstum því hvaða veðri sem er bæði á útisvæðið okkar, í nærumhverfi og lengri vettvangsferðir. Það er því miður ekki kominn tími til að pakka niður kuldagallanum, hlýju peysunni og lambhúshettunum, en við krossum fingur að það verði hægt von bráðar.

Góða helgi J

© 2016 - Karellen