Föstudagsfrétt á fimmtudegi
30. 04. 2026
Gleðilegan fimmtudag
Undanfarnir dagar hér á Lóu eru búnir að vera fróðlegir og fjörugir eins og okkur er lagið. Við vorum samt sem áður að vona að með vorkomunni og Sumardeginum fyrsta kæmi almennilegt veður. En við létum það ekki á okkur fá og klæddum okkur bara vel áður en út var farið. Það voru farnar ævintýraferðir í rigningunni og ormabjörgun á skólalóðinni var mikilvægur hluti af útiverunni síðustu daga. Ormar eru nefnilega smá kjánar og fara úr moldinni þegar það er rigning svo það þarf að bjarga þeim svo það verði ekki óvart stigið á þá.

Elstu börnin hér í skólanum eru farin að undirbúa komandi útskrift í maí og eru nú þegar búin að skella sér í alvöru myndatöku með ljósmyndara sem foreldrafélagið gaf þeim í útskriftargjöf. Einnig eru krakkarnir byrjaðir að skapa listaverk sem munu prýða veggi skólans á sjálfan útskriftadaginn. Spennan fyrir útskrift eykst jafnt og þétt eftir því sem nær dregur og mikið er verið að ræða um komandi grunnskólagöngu af mikilli tilhlökkun.

Lubbi er búinn að vera að kenna okkur málhljóðin EI-EY og Ó undanfarið og sagði okkur meðal annars söguna um hana Eygló sem heimsækir Svein frænda sinn í Heimaey og Ómari óðinshana sem kann best við sig í óbyggðum Ódáðahrauns. Næstu vikurnar munum við svo einbeita okkur að því að rifja upp þau málhljóð sem Lubbi hefur kennt okkur.
Listahátíð barnanna- BAUN var sett með pompi og prakt í dag 30.maí og að því tilefni fór elsti árgangurinn á setningarathöfnina þar sem þau skoðuðu listaverkið sem þau sköpuðu með hjálp annarra barna í skólanum, ásamt listaverkum frá flestum leikskólum sveitafélagsins. Öll börnin í leikskólanum hafa fengið afhent BAUNabréf þar sem dagskrá hátíðarinnar kemur fram ásamt öllu því skemmtilega sem hægt er að gera og sjá. Við hvetjum alla til þess að kynna sér dagskrá hátíðarinnar og gera sér glaðan dag á BAUN.

Góða helgi