Föstudagsfrétt Lóu
13. 02. 2026
Góðan og gleðilegan föstudag.
Hér á Lóu áttum við mjög skemmtilega viku þar sem við héldum áfram að undirbúa okkur fyrir Listahátíð barna og sköpuðum alls kyns furðuverur á pappír með henni Ylfu í listasmiðjunni. Við héldum líka áfram að æfa söngvana sem við syngjum með öðrum börnum á setningu hátíðarinnar og ganga þær æfingar mjög vel. Yndislega milt vetrarveður er búið að vera þessa viku en ennþá er snjórinn eitthvað að fela sig þrátt fyrir mikla kuldatíð seinnipart vikunnar. Snjóleysið er aðeins að rugla í okkur því börnin sjá bara þessa dásamlegu sól og skilja ekkert í því af hverju þarf að klæða sig vel. Af hverju er ekki úlpa, húfa og skór? Er setning sem hefur hljómað reglulega þessa vikuna ?

Lubbi fór með okkur yfir samhljóðan T og sagði okkur frá henni Torfhildi frá Tröllaskaga sem er trommuleikari í hljómsveitinni Tennurnar hans afa. Sveitin er einnig skipuð þeim Tinnu sem spilar á gítar, Tuma sem spilar á bassa og Teiti sem syngur töfrandi tóna. Saman spilar hljónsveitin taktfasta tóna og syngja um túnfífla, tófur, toppendur og titrandi stjörnur. Næsta málhljóð er svo samhljóðinn K og þá segir Lubbi okkur vonandi frá einhverjum Kisum svo að Massa nenni nú að læra þetta málhljóð með krökkunum ?

Næsta vika fagnar okkur svo með þremur frábærum tyllidögum sem allir gleðja. Mánudagurinn býður okkur upp á Bolludag, þriðjudagurinn upp á Sprengidag og Miðvikudagurinn býður upp á uppáhaldsdag margra sjálfan Öskudaginn. Til að jafna okkur á allri þessari gleði ætlum við svo að fara í smá vetrarfrí og verður leikskólinn lokaður á fimmtudag og föstudag.
Góða helgi.