Föstudagsfrétt Lóa
17. 04. 2026
Kæru foreldrar
Það hefur verið nóg að gera þessa viku. Á mánudaginn fengum við óvænta heimsókn frá lögreglunni, sem vakti mikla hrifningu hjá börnunum. Við fórum í flottar vettvangsferðir, þar sem við tókum til rusl og flokkuðum í tunnurnar okkar úti. Leikið í steinum og hólum, farið á skemtilegan leikvöll með þrautabraut og jafnvægis slá.
Lubbi kom með málhljóði Ææ orðin Æðey, ævilega, ævintýri, æðavarp, æðadún, hlæja og gæti.
Allir hópar fóru í hreyfingu hjá Ástu í frjáls íþróttir og fimleikaæfingar. Í jóga var farið í veðurnudd, jógastund og kærleikssteina.
Í samveru var sungið og lesið margar bækur. Rauðhetta og úlfurinn var mjög vinsæl, en bókin prumpulíus fékk alla til að hljæja.
Takk fyrir vikuna og góða helgi


