news

Föstudagsfrétt

26. 01. 2024

Góðan daginn

Nýr starfsmaður hóf störf nú í janúar en það er hún Imba sem verður hjá okkur á deildinni á fimmtudögum og föstudögum.

Þessa vikuna höfum við verið að leika okkur með slæður, trjádrumba, tréleikföng, ljós og blóm. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og eitthvað sem við ætlum að halda áfram að vinna með.

Í dag föstudag var leikfangadagur í leikskólanum og mörg börn sem mættu með leikfang með sér í leikskólann. Við æfðum okkur í að bera virðingu fyrir leikföngum annarra og leyfa öðrum að prófa dótið okkar. Þetta gekk mjög vel hjá langflestum.

Hér eru nokkrar myndir frá starfi vikunar.

Góða helgi


49383-webservice-65b3b5a2305ef.jpg

49383-webservice-65b3b58b4dbeb.jpg

49383-webservice-65b3b58877e05.jpg

49383-webservice-65b3b59f8e2c9.jpg

© 2016 - Karellen