news

Föstudagsfrétt

03. 06. 2022

Góðan daginn kæru foreldrar, vikan okkar var heldur betur viðburðarrík hjá okkur hér á Lóu. Sigríður Margrét tók við sem deildarstjóri, Hrafn kom frá deildinni Krumma, Inga Sjöfn hélt áfram á Lóu og Camilla kom einnig inn til okkar úr sérkennsluteyminu. Á þriðjudaginn var sumarhátíðin hjá okkur haldin og heppnaðist hún mjög vel, á fimmtudeginum byrjuðu hjá okkur ný börn í aðlögun og hefur verið gaman að fá að kynnast þeim. Við fórum mikið út að leika og lékum mikið inni og nýttum tíman vel í að kynnast hvert öðru.

Takk fyrir vikuna og njótið helgarinnar.

Kærar kveðjur,

starfsfólk Lóu.

© 2016 - Karellen