Föstudagsfrétt
06. 03. 2026
Kæru foreldrar
Þá er fyrsta vikan í mars liðin og höfum við haft nóg að gera í vikunni sem leið. Lubbastafur vikunnar er Á og höfum við verið að æfa orð eins og Álft, Ánægja, Áttaviti, Áðan og mörg önnur skemmtileg orð. Orðaþemað í Mars mánuði er Stærðir, Form, Mynstur og munum við skoða það sérstaklega vel í þessum mánuði. Við vorum svo heppin að fá bókina Bergrisinn vaknar að gjöf frá samtökum sveitafélaga á suðurnesjum og munum við vinna með hana í tengslum við Listsahátíð barnanna þar sem börnin á Skógarási ákváðu að búa til Tröll. Farið var í nokkrar skemmtilegar vettvangsferðir enda veðrið verið dásamlegt mest alla vikuna. Þegar veðrið lék ekki við okkur nutum við þess að vera inni í sjálfsprottnum leik. Farið var í Jógastundir með Ingibjörgu þar sem allir fundu ró og æfðu sig í að hlusta á líkamann.
Njótið helgarinnar og við hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn.


