news

Vikan 4. mars - 8. mars

08. 03. 2019

Í þessari viku höfum við verið að læra hljóðið Rr með Lubba. Við sungum R lagið úr Lubba bókinni okkar og skoðuðum orð sem byrja á R eins og Regnbogi, Risaeðla, Rós, Regn, Radísa.


Þessi vika byrjaði aldeilis vel þar sem bolludagurinn var mánud 4 mars, og fengum við gómsætar bollur og fannst okkur það ansi gott.

Sprengjudagurinn var svo þriðjud 5.mars og fengum við saltkjöt og baunir, ummm.

Öskudagurinn var svo 6.mars og var mikið líf og fjör hjá okkur, fórum í strætó upp í kletta þar sem Háaleitisskóli er og fundum við kassa þar með glaðning í . Svo fórum við á ball inn í hreyfisal með öllum deildum þar sem var dansað var mikið og krakkarnir og starfsfólk skemmtu sér konunglega.

Takk fyrir frábæra viku og góða helgi :)

© 2016 - Karellen