news

Lán í óláni

12. 03. 2021

Skemmtilegt atvik gerðist á föstudeginum þar sem að 2015 árgangi var boðið í ratleik á bókasafn Reykjanesbæjar. Hópurinn fór með strætó frá leikskólanum og niðrí Nettó. Þar átti hópurinn að skipta um strætó og fara inní Keflavík og það gerðu þau en þau stigu inní vitlausan strætó og fóru inní Njarðvík í staðinn. Þannig í staðinn skellti hópurinn sér í Húsasmiðjuna og fengu að skoða allt þar.

Þetta fannst krökkunum verulega skemmtilegt, smá óvissuferð og ævintýri á sama tíma. Eftir þetta löbbuðu þau tilbaka í leikskólann.

© 2016 - Karellen