news

Föstudagsfrétt

01. 12. 2023

Komiði sæl. Í þessari viku kenndi Lubbi okkur hljóðið Gg sem er samhljóði. Við æfðum okkur að skrifa, spiluðum spil og lásum sögu.

Á þriðjudaginn fórum við með strætó niður í aðventugarðinn þar sem við hengdum upp greinar sem krakkarnir höfðu málað og skreitt með glimmeri. Síðan lékum við okkur á leikvellinum í garðinum og var það mikið fjör.

Krakkarnir nutu sín í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum saman í vikunni. Síðan í morgun, föstudag, var danspartý í hreyfisalnum þar sem krakkarnir af Lóu og Spóa skemmtu sér konungslega.

Takk fyrir skemmtilega viku og njótið helgarinnar.

© 2016 - Karellen