news

Takk fyrir kæru foreldrar

29. 04. 2024

Foreldrafélag leikskólans kom færandi hendi í tilefni sumarkomu og færði skólanum að gjöf sumarleikföng til útileikja. Mikið eru börnin okkar heppin að eiga öflugt foreldrafélag að. Þetta eru leikföng til vatnsleikja og sköpunar.

Í gjöfinni voru skemmtilegar krítartöflur sem við höfum fest á girðinguna umhverfis svæðið okkar og mikið er skemmtilegt að sjá börnin njóta sín í listsköpun með krítum.

Einnig voru vatnsleikföng og sápukúlur. Börnin nutu sín vel í sumarblíðunni við að sulla, kríta og blása sápukúlur.

Kærar þakkir foreldrafélag fyrir ykkar góða starf og velvilja.

© 2016 - Karellen