news

Föstudagsfrétt Spóa

07. 05. 2026

Góðan daginn kæru foreldrar. Í þessari viku unnum við með málhljóðin hl og hj og ræddum einnig mikið um fatnað og veðurfar þar sem það er orðaforðaþemað okkar í maí. Þar að auki vorum við mikið á farandsfæti, við fórum í vettvangsferðir á listahátíðina og bókasafnið en þegar börnin voru spurð hvað var skemmtilegast við ferðirnar nefndu þau oftast strætó, það er greinilega það sem stendur upp úr.

Þegar við fórum á listahátíðina fórum við einnig niður að sjónum og veltum fyrir okkur lífinu í honum, og börnin voru viss um að í honum væru bæðir fiskar og fuglar. Þeim fannst einnig mjög skrítið að báturinn við sjóinn væri upp á landi en ekki út á sjó.

Takk fyrir vikuna :)

© 2016 - Karellen