news

Miðvikudagsfrétt Spóa

22. 04. 2026

Góðan daginn kæru foreldrar, að þessu sinni kemur föstudagsfréttin á miðvikudegi þar sem leikskólinn er lokaður fimmtudag og föstudag. Í þessari viku héldum við áfram að kynnast orðum úr orðaforðaþemanu form, stærðir og mynstur og æfðum okkur í málhljóðinu æ með Lubba vini okkar.

Við vorum einnig mikið í útinámi, fórum í móann fyrir aftan leikskólann að skoða klettana og rúlla okkur í brekkunni og fórum líka á bókasafnið í sögustund með vinum okkar á Krumma. Einnig vorum við mikið að skapa saman, að mála,sulla og þræða.

Við fengum okkur líka nónhressingu úti í góða veðrinu í gær sem vakti mikla lukku hjá börnunum :)

Takk fyrir vikuna. :)

© 2016 - Karellen