news

Föstudagsfrétt Spóa

09. 04. 2026

Góðan daginn kæru foreldrar.

Mikil gleði var í loftinu hjá okkur á Spóa þegar vinir hittust á ný eftir páskafrí. Í vikunni byrjuðum við á nýju orðaforðaþema og munum í apríl læra ýmislegt um form, stærðir og mynstur og orð sem tengjast því. Lubbi fann málbeinið Ð í þessari viku og við lásum um Daða sem fékk lúðu í matinn og fannst börnunum frekar skrýtið að það væri fiskur sem héti lúða. Einnig ræddum við um snúða og bað og mörgum barnanna finnst gaman að fara í bað og borða snúð.

Í vikunni vorum við einnig mikið að gera tilraunir með einingakubbana og það sköpuðust margar skemmtilegar og fjölbreyttar byggingar. Það er einnig gaman að sjá hvað byggingarnar verða oft fallegt samvinnuverkefni barnanna, þau hjálpast að, deila hugmyndum og skapa í sameiningu.


Einnig var mikill áhugi á sköpun í vikunni og er gaman að sjá hvað mörg barnanna eru farin að vera dugleg að skrifa, geta t.d. skrifað nafnið sitt og prufað sig áfram með önnur orð. Margt að gerast :)

Takk fyrir vikuna og góða helgi kæru fjölskyldur.

© 2016 - Karellen