news

Föstudagsfrétt Spóa

19. 03. 2026

Góðan daginn kæru foreldrar. í þessari viku höfum við verið að vinna með málhljóðið Þ og orðaforðaþemað ja. Það var tannverndarvika í þessari viku þannig við ræddum mikið saman um tannheilsu og sungum lög í hreyfisalnum á þriðjudag með tannálfunum Tinnu og Tryggva. í dag sáum við líka smá brot úr Karíus og Baktus í salnum og í gær héldum við upp á mottumarsdaginn.

Einnig höfum við mikið verið að leika með stóra holukubba og þannig æfa börnin samvinnu, rýmisvitund og stærðfræðilega þekkingu. Einnig vorum við með vináttustund með Blæ vini okkar. Lubbi er líka mjög þakklátur fyrir allar bækurnar sem hann hefur fengið að lesa í lestrarsprett Lubba og er spenntur að lesa fleiri bækur.


Takk fyrir vikuna.

© 2016 - Karellen