Föstudagsfrétt Spóa
26. 02. 2026
Góðan daginn kæru foreldrar. Í þessari viku höfum við verið að vinna með málhljóðið K og erum að klára að vinna með orðaforðaþema febrúarmánaðar, farartæki og umhverfi úti. Við höfum verið að æfa okkur að syngja lög eins og myndin hennar lísu og háttatími á himnum. Við sungum þau í morgun í söngstund í sal í tilefni af degi sjaldgæfra sjúkdóma. Í vikunni hafa einnig verið margar umræður hjá okkur á Spóa um veðrið, þar sem við höfum fengið bæði rigningu og snjó á stuttum tíma börnunum til mikillar gleði, og við ræddum t.d. um það að rigningin hefði brætt snjóinn.
.jpg)
.jpg)

Einnig fórum við í útinám út fyrir lóðina og vakti það t.d. mikla athygli barnanna þegar þau sáu mikið rusl í runnunum við Kadeco húsið. Þessu vildu þau bæta úr og stóðu sig með mikilli prýði í því að hreinsa ruslið úr runnunum og flokka það í réttar tunnur með aðstoð kennara. Það er því ljóst að börnin eru meðvituð um það hvar ruslið á heima.
.jpg)
.jpg)
Það er líka mikill áhugi meðal barnanna á bókstöfum þessa dagana og margir að æfa sig að skrifa nöfnin sín og aðra bókstafi og orð. Gaman að fylgjast með þeim spreyta sig.
Hér eru líka smá myndir af öskudeginum frá síðustu viku.


Góða helgi og takk fyrir vikuna :)