Föstudagsfrétt Spóa
06. 03. 2026
Góðan daginn kæru foreldrar. Í þessari viku vorum við að vinna með málhljóðið ö og byrjuðum að skoða orðaforðaþemað iðja.


Einnig vorum við að læra um söguna af Karíusi og Baktusi og að kynnast lögunum sem tengjast henni. Við fórum einnig á bókasafnið, æfðum okkur að klippa, fórum út að mála snjóinn og ýmislegt annað.



Blær og Lubbi voru líka að sjálfsögðu á sínum stað, að ræða um gildin sem tengjast vináttu og æfa málhljóðin.
