news

Fimmtudagsfrétt Spóa

29. 04. 2026

Góðan daginn kæru foreldrar. Í þessari viku unnum við áfram með þemað um formin, stærðirnar og mynstur og unnum með málhljóðið ei/ey og ræddum meðal annars um orðin eyra, einhyrningur og eikarhneta.

Einnig var mikill áhugi barnanna fyrir ormunum sem birtust víða úti í rigningunni og höfum við því mikið rætt um orma og hlutverk þeirra í náttúrunni í vikunni. Ásamt þessu vorum við mikið að spila saman, bjuggum líka saman til leir og sköpuðum saman með vatnslitum. Takk fyrir vikuna. :)

© 2016 - Karellen