news

Erasmus+ styrkur

03. 09. 2018

Við á Heilsuleikskólanum Skógarási vorum að fá styrk frá Erasmus+ vegna verkefnis sem við erum að fara að taka þátt í sem heitir Eco tweet. Samstarfslöndin eru 5, Tyrkland, Grikkland, Noregur, Eistland og Svíþjóð. Í þessu verkefni verður lögð áhersla á alhliða umhverfismennt og umhverfisábyrgð í gegnum STEM verkefni (vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði). , sem fellur vel að okkar starfi og stefnu. Í verkefninu verður meðal annars skoðaðar íslenskar jurtir, íslensk dýr og endurnýtanleg orka.

© 2016 - Karellen