Ukulele í leikskólastarfinu
05. 10. 2023
Allir kennarar skólans hafa verið að sækja námskeið til að nýta Ukulele í leikskólastarfinu. Það er svo skemmtilegt þegar við getum spilað undir söng barnanna og því var ákveðið að allir tækju þátt í Ukulele námskeiði. Það kom í ljós að börn í skólanum kunna að spila á Ukulele og einn þeirra er að læra í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og má sjá hann spila hér lítið lag fyrir börn og kennara. Þetta var skemmtileg uppákoma í samverustund á Spóa og allir höfðu gaman að.
Dagbjört kennari á Spóa tók lagið.
Þessi ungi maður kunni lag á pólsku sem hann spilaði við góðar undirtektir :)