news

Höldum dag leikskólans hátíðlegan í Skógarási

06. 02. 2024

Við bjóðum góðan dag alla daga

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil.

Sjötti febrúar á sér þó lengri sögu og merkilegri því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Í Skógarási buðum við upp á flæði um skólann sem vakti heldur betur lukku meðal barnanna.

Í hreyfisalnum var gleði og gaman eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Í starfinu okkar leggjum við áherslu á margbreytileika lífisins og unnið var að sameiginlegu listaverki þar sem allir tóku þátt í við skemmtilegt undirspil í hreyfisalnum og á þannig viljum við leggja áherslu á að við öll skiptum máli eins og segir í annari grein Barnasáttmála sameinuðu Þjóðanna að öll börn eru jöfn.

20240206_095122.mp4

© 2016 - Karellen