Krummafrétt
22. 03. 2024
Við höfum mikið verið að kubba með eininga- og holukubbana á Krumma í vikunni, og mikil samvinna hjá börnunum í byggingarvinnu og leik með kubbana. Einnig fórum við í skemmtilegan leik í samveru við lagið ,Krókódíll í lyftunni' sem vakti mikla lukku hjá börnunum.
Börnin kláruðu líka krukkur sem þau máluðu í listasmiðju en í krukkurnar fóru svo greinar sem þau týndu í vettvangsferðinni sem þau fóru í um daginn. Börnin voru mjög stolt af sinni vinnu.
Við fengum líka tannálfana Tinnu og Tryggva í heimsókn sem minntu okkur á að hugsa vel um tennurnar og bursta þær vel. Endilega skoðið myndirnar :)