news

Vikan 28. sept - 2. okt

05. 10. 2020

Vikan 28.september - 2.október

Við brölluðum margt í vikunni sem leið, lékum okkur með töfrasand, gengum yfir poppmaís, fræ og sand. Við teiknuðum myndir, lékum okkur með kubba, leiruðum og púsluðum.

Við fórum í hreyfisalinn á þriðjudag og fimmtudag í skipulagða hreyfingu hjá Ástu.

Á fimmtudaginn í fyrri útiveru fórum við á svæðið hjá eldri krökkunum og lékum okkur þar og það var mikið fjör.

Lubbi var að kenna okkur stafinn D

Í samverustund sungum við, fórum í leiki og hlustuðum á bækur lesnar.


Takk fyrir vikuna




© 2016 - Karellen