news

Pipakökubakstur og gítar í heimsókn

06. 12. 2019

Í þessari viku vorum við að baka pipakökur sem við ætlum að bjóða upp á í jólagleði hjá okkur. Börnunum fannst mest spennandi að nota kökukeflið. Mikið var notarlegt að hlusta á jólalög og gera pipakökur og ég tala nú ekki um að finna lyktina þegar kökurnar voru að bakast.


G var stafur vikunnar þessa viku og vorum við að vinna með orðið gítar. Við töluðum um að gítar væri hljóðfæri. Svo í dag fengum við gítar til okkar og vorum við að æfa okkur að spila á hann.

© 2016 - Karellen