news

föstudagsfréttir

26. 03. 2021

Í þessari viku hefur Lubbi verið að kennar okkur hljóið Ææ. Einnig höfum við lært nokkur æ-orð eins og æðislegt,annað orð yfir frábært, ærslafullur, annað orð yfir fjörugur og gætilega, að fara varðlega.

Við höfum aðeins ræt um eldgos, og sumir hafa teiknað mjög flottar myndir af því. Einnig föndruðum við smá páskaskraut.

Við fengum skemmtilega heimsókn til okkar, en nokkur börn frá Krumma og Kríu kítu til okkar í samverustund á mánudaginn. Þar lærðum við saman með Lubba og sungum nokkur vel valin lög, ástamt því að fá okkur morgunhressingu.

Ein morgunin tóku nokkrur eftitektarsöm börn tóku eftir lítilli kónguló, dordingli, skríða um gólfið hjá okkur. Það vakti mikla lukku og var farið og náð í alla til þess að skoða kóngulónna.

Takk fyrir vikuna og góða helgi!

Strætóleikur er mjög vinsæll leikur.


© 2016 - Karellen