news

Föstudagsfrétt

08. 03. 2024

Góðan daginn

Í þessari viku vorum við að læra tvö ný lög, annað heitir synda í Keflavíkursundlaug og hitt heitir Spiderman. Við eigum eftir að æfa okkur betur að syngja lögin.

Við vorum að æfa okkur með samsettorð og afstöðuhugtök. Einnig erum við búin að vera að æfa okkur í því hvenær við eigum afmæli og vinstri og hægri.

Við æfðum okkur líka í að þræða og klippa með skærum.

Teiknuðum listaverk á maskínupappír sem við hengdum á ganginn og þið getið skoðaða. Reyndar voru fá börn mætt þennan dag og ekki allir höfðu áhuga á að taka þátt.

Hér koma nokkrar myndir frá vikunni:

49383-webservice-65eb0f091b0ce.jpg

49383-webservice-65eb0f1930944.jpg

49383-webservice-65e86a2e779fb.jpg

49383-webservice-65e86a3fafd9e.jpg

Takk fyrir vikuna og góða helgi.


© 2016 - Karellen