Föstudagsfrétt
05. 04. 2024
Komiði sæl. Nú er páskatíðin liðin og við mætt aftur til starfa. Hljóðið sem við erum ætlum að læra í þessari viku er ei/ey.
Á þriðjudaginn var ákveðið hverjir yrðu hvað í Karíus og Baktus leikritinu sem við ætlum að sýna. Það eru alls konar hlutverk í boði og auðvitað fá allir að vera með í leikritinu.
Á miðvikudaginn fór skólahópurinn með strætó niður í Reykjaneshöll til að spila fótbolta.
Á sama tíma fór yngri hópurinn frá Spóa og eldri hópurinn frá Lóu saman í strætó á bókasafnið til að hlusta á sögulestur.
Á fimmtudaginn var ágætt veður fyrir hádegi svo það var farið út en það var ákveðið að fara ekki út eftir nónhressingu því það var svo mikil rigning og leiðindar rok. Í staðin vorum við inni að leika okkur og hafa það notalegt.
Takk fyrir vikuna og njótið helgarinnar.