Heilsuleikskólinn Skógarás er staðsettur á Ásbrú í Reykjanesbæ, á svæði sem áður tilheyrði varnarsvæði Bandaríkjahers. Eftir brottför hersins hófst hröð uppbygging og mótun nýs samfélags á svæðinu og árið 2007 var grunnur að háskólasamfélagi lagður. Á svæðið flutti fjölbreyttur hópur fólks alls staðar að af landinu og hefur sá fjölbreytileiki einkennt nærumhverfi leikskólans allar götur síðan.

Leikskólinn tók til starfa 2. september 2008 og deildi fyrstu árin húsnæði með grunnskólanum Háaleiti, þar til hann flutti í núverandi húsnæði haustið 2018.


Rekstur og heilsustefna

Skólinn er rekinn af Skólum ehf. í samstarfi við Reykjanesbæ. Allir leikskólar í rekstri fyrirtækisins starfa samkvæmt Heilsustefnunni, sem leggur áherslu á heildræna vellíðan barna með næringu, hreyfingu og sköpun í forgrunni. Sumarið 2010 hlaut Skógarás formlega viðurkenningu sem Heilsuleikskóli.

Öll börn taka þátt í skipulögðum hreyfi- og sköpunarstundum 1–2 sinnum í viku með sérhæfðum kennurum. Þessar stundir styðja við markmið leikskólans og Heilsubók barnsins.

Áhersla er á hollt heimilisfæði og góða matarmenningu. Leitast er við að draga úr sykurnotkun, auka framboð grænmetis og tryggja jafna orkugjöf yfir daginn. Matseðlar eru í samræmi við ráðleggingar Embættis Landlæknis og samþykktir af næringarfræðingi Samtaka Heilsuleikskóla.


Heildræn sýn á barn og samfélag

Í Heilsuleikskólanum Skógarási er lögð rækt við kærleiksríkt, öruggt og inngildandi umhverfi þar sem hvert barn fær að þroskast á eigin forsendum. Markvisst er unnið að því að efla líkamlega, andlega og félagslega vellíðan barna, styrkja sjálfstæði þeirra og sjálfsmynd og skapa jákvæða upplifun af leik og námi.

Grunnhugsjónin er að öll börn læri að virða heilsu sína og annarra sem ómetanlegt verðmæti og að þau verði virkir þátttakendur í samfélagi sem byggir á velferð, virðingu og samvinnu.


© 2016 - Karellen