Leikskólinn Háaleiti tók til starfa 1. september 2008 og er rekinn af Skólum ehf. í samvinnu við Reykjanesbæ.Leikskólinn var upphaflega rekinn í gamla barnaskólanum á Ásbrú sem notaður var á tímum Varnarliðsins á Keflvíkurflugvelli, en grunnskólinn Háaleiti samnýtiti húsið.

Árið 2018 flutti leikskólinn í betra húsnæði þar sem umfang grunnskólans á Ásbrú var orðið það mikið og þurfti meira pláss.Hluti þessa nýja húss er gamalt og var notað sem samkomuhús fyrir fjölskyldur hersins á tímum varnarliðsins og hefur síðan verið nýtt til ýmissa hluta en í dag eru að þar tvær yngri deildir skólans og síðan var byggt við stálgrindarhús sem hýsir eldri deildirnar.Húsnæðið er mjög gott skemmtilegt.

Skólar ehf voru stofnaðir af feðgunum Pétri Guðmundssyni og Guðmundi Péturssyni. Pétur á sér langa sögu úr íþróttum og var mjög heillaður af hugmyndinni að vera með einverskonar ”íþróttaskóla”. Pétur ákvað að ganga til liðs við Unni Stefánsdóttur og Heilsustefnuna og fékk Unni síðan til starfa við fyrirtækið sem faglegan stjórnanda. Feðgarnir hafa alltaf lagt mikla áherslu á samstarf við samtök Heilsuleikskóla, hvatt okkur stjórnendur til að vera sýnilegar í heilsueflandi leikskólastarfi og að vera virkar innan samtakanna og höfum við skólastjórnendur m.a. verið hluti af stjórn samtakanna í gegnum árin.Skólar ehf reka í dag 5 leikskóla;

  • Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi frá árinu 2006
  • Heilsuleikskólinn Skógarás í Reykjanesbæ frá árinu 2008
  • Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykavík frá árinu 2008
  • Urriðaból í Garðabæ á heilsubraut frá árinu 2022
  • Sólborg í Suðurnesjabæ á heilsubraut frá 2023

Skógarás fékk þann heiður að verða heilsuleikskóli árið 2010.Strax í upphafi reksturs skólans vildu feðgarnir að í Skógarási yrði rekinn heilsuleikskóli og því stóð alltaf til að skólinn starfaði eftir heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur.

Í Skógarási hefur verið lögð mikil áhersla á hreyfiþroskann og hollan og næringarríkan mat.

Árið 2013 byrjuðu Skólar ehf. að þróa samræmda matseðla og uppskriftabanka í samstarfi, þar sem lýðheilsufræðingur stýrði ásamt, næringarfræðingi, skólastjórnendum og starfsfólki eldhúsa skólanna, árið 2015 var gefin út næringarstefna og uppfærðir matseðlar og uppskriftabanki.

Verkefnið fékk tilnefningu til Fjöreggsins 2015 en verðlaunin eru veitt af Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands með stuðningi Samtaka iðnaðarins fyrir lofsvert framtak á matvæla- og/eða næringarsviði og árið 2019 gáfu Skólar samtökum Heilsuleikskóla þennan pakka, sem síðan hefur staðið öllum Heilsuleikskólum til boða og eins geta aðrir leikskólar keypt aðgang að þessum gögnum.

Haustið 2010 eftir að heilsuleikskólaáfanganum varð náð, þá var ákveðið að skrá skólann í verkefni Landverndar, skólar á grænni grein og byrjað var markvisst að móta umhverfisstefnu og umhverfismennt skólans. Þessi áhersla var líka ljós frá upphafi, því þetta harmóneraði mjög vel við hugmyndafræði feðganna.Haustið 2015 fékk skólinn fyrsta grænfánann og síðan aftur 2017 og 2021.

2011 tók skólinn þáttt í að móta framtíðarsýn Reykjanesbæjar varðandi læsi og stærðfræði.Allir leik- og grunnskólar í Reykjanesbæ tóku þátt í því verkefni og náðist að lyfta grettistaki hvað varðar læsi í víðum skilningi og skólarnir hafa allar götur síðan haldið þessu verkefni við.

Árið 2014 var farið af stað með að gerast Heilsueflandi skóli sem er verkefni á vegum landlæknisembættisins og er Skógarás skóli númer 4 sem byrjar það verkefni.

Árið 2015 var síðan ákveðið að fara í samstarf við Special Olympics með YAP (young athelete program) verkefnið og skólinn fékk viðurkenningu frá SO Iceland sem fyrsti YAP skólinn á Íslandi.Árið 2016 var farið af stað með verkefnið „What´s your moove“ sem var Erasmus+ verkefni til 2 ára (YAP verkefni) í samstarfi við leikskóla í Noregi og Eistlandi.

Nýtt verkefni leit dagsins ljós árið 2017 þegar ákveðið var að taka þátt í BHRG og svo aftur 2019. Þetta var Erasmus+ verkefni sem margir skólar tóku þátt í.

Skólar ehf. fengu úthlutað góðum styrk vegna lýðheilsu- og forvarnarverkefnis sem snýr að því hvernig hægt er að greina áskoranir og nýtt markvissa hreyfiörvun sem snemmtæka íhlutun til að stuðla að bættum heila- og taugaþroska barna. Skólinn var í samstarfi við BHRG rannsóknarstofnunina í Búdapest. Fulltrúar allra skólanna okkar tóku þátt í þessu ahugaverða verkefni.

Árið 2018 var síðan tekið þátt í ECO TWEET –Erasmus+ umhverfisverkefni og stóð það yfir í 3 ár, framlengt um 1 ár vegna covid, áherslurnar voru á umhverfismennt með STEAM áherslum

Eitt af markmiðum verkefnisins var að allir þátttökuskólarnir fengju grænfánann í lok verkefnis og tókst það.Samstarfslöndin voru Tyrkland, Grikkland, Svíþjóð, Noregur og Eistland.Í mai mánuði árið 2019 var unnið að eTwinning verkefni sem fékk viðurkenningu sem besta eTwinning verkefniskólaársins verðlaunagripurinn heitir Erasmus+ - jöfn tækifæri.

Árið 2021 var síðan tekið þátt í nýju Erasmus+ verkefni sem bar heitið „Bíó Tríó“. Bio-Trio er samstarfsverkefni 6 stofnana frá Íslandi, Ungverjalandi, Rúmeníu og Slóvakíu.

Markmið verkefnisins var að læra hvernig sé best að stuðla að heilbrigðum samskiptum við börn með sérþarfir, foreldra þeirra, sérkennara og annað fagfólk sem kemur að málefnum barna.

Árið 2021 hlaut skólinn styrk frá Nýsköpunar og þróunasjóði Reyjanesbæjar vegna verkefnisins „Efling hljóðkerfisvitundar með tónlistariðkun“.

Árið 2024 hlau skólinn styrk frá Nýsköpunar og þróunarsjóði Reykjanesbæjar fyrir verkefnið „Málgleði“ þar sem mótuð er málstefna skólans

© 2016 - Karellen