Fyrirtækið Skólar ehf. rekur Heilsuleikskólann Skógarás með þjónustusamningi við Reykjanesbæ. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2001 hefur verið lögð sérstök áhersla á heilsueflandi skólastarf og endurspeglast meginmarkmið og leiðarljós þess í kjörorðinu „Heilbrigð sál í hraustum líkama". Stefna fyrirtækisins miðar að því að efla samheldni og hæfni starfsmanna til að ná fram settum markmiðum á sviði heilsueflingar.
Allir leikskólar í rekstri Skóla starfa sjálfstætt undir stjórn skólastjóra sem ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á daglegum rekstri viðkomandi skóla og hefur yfirumsjón með honum. Þetta skipulagsform gerir hverjum skóla fyrir sig kleift að þróa sínar eigin áherslur og skapa sér sérstaka skólamenningu, en jafnframt starfa allir skólarnir eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur og stefna að sameiginlegum markmiðum. Fyrirtækið rekur í dag fjóra leikskóla með þjónustusamninga við viðkomandi sveitarfélög, þeir eru:
- Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi (2006)
- Heilsuleikskólinn Skógarás í Reykjanesbæ (2008)
- Ungbarnaheilsuleikskólinn Ársól í Reykjavík (2008)
- Urriðaból I í Garðabæ (2022)
- Urriðaból II í Garðabæ (2024)
Meginmarkmið Skóla eru:
- Forysta í heilsueflandi skólastarfi - Vera leiðandi í þekkingu og aðferðafræði heilsueflandi leikskólastarfs með heilsu og lífsgæði barna, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi
- Heilsusamlegt umhverfi - Skapa aðstæður og umhverfi sem hvetja til heilsusamlegra ákvarðana og stuðla að vellíðan allra
- Fagmennska og gæði - Byggja starfsemina á vel menntuðu, samstilltu og ábyrgu fagfólki sem leggur áherslu á stöðuga þróun og framúrskarandi þjónustu
- Heilsumeðvituð vinnustaðamenning - Rækta fyrirtækjamenningu sem einkennist af heilsumeðvituðum og ánægðum starfsmönnum sem eru stoltir af sínum vinnustað og viðhalda jákvæðu andrúmslofti
- Þróun og vöxtur - Auka veg heilsueflingar í skólastarfi, deila þekkingu með öðrum og fjölga heilsuskólum á Íslandi í náinni framtíð


