Samkvæmt 11.gr.laga um leikskóla skal vera starfrækt foreldraráð við skólann og að lágmarki skuli þrír foreldrar sitja í ráðinu.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfinu.

Í foreldraráði skólaársins 2023-2024 eru:

  • Margrét Matthíasdóttir foreldri á Krumma
  • Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf foreldri á Lóu
  • Ína Steinunn Pálsdóttir foreldri á Spóa
© 2016 - Karellen