Hreyfing í Skógarási
Hreyfing í Heilsuleikskólanum Skógarási er ein af áherslum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir sem skólinn starfar eftir.
Hreyfistundir í sal leikskólans eru skipulagðar og eru í umsjá íþróttakennara, tvisvar í viku fyrir hvert barn. Auk þess fara börn sem þurfa á aukaþjálfun að halda vegna ýmissa frávika, tvisvar í viku. Til viðbótar hefur hvert barn aðgang að sal með sínum kennara þegar aðstæður leyfa.
Hreyfing yngstu barna er sett þannig upp að umhverfið hvetji þau í sjálfsprottinn leik og þannig fái þau ákveðið frelsi í öruggu umhverfi til að skríða, príla og veltast um, rannsaka og æfa sig á sínum forsendum og hraða.
Þau eru flest vön að ganga/skríða um á sléttu undirlagi og því er nauðsynlegt að þjálfa þau í að ganga/skríða á misháu og misjöfnu undirlagi. Þannig eykst samhæfing, jafnvægi og styrkur barnsins sem leiðir það til frekari áskorana.
Þegar þau verða eldri 3 – 6 ára, þá eru hreyfistundirnar skipulagðar og þar gefst tækifæri til að meta stöðu einstakra barna og ýta undir frekari þroska og hæfni þar sem það á við. Skipulagðar hreyfistundir með ákveðnum markmiðum eru vettvangur fyrir hinn fullorðna til að skapa umhverfi og aðstæður sem laða fram ýmsa hæfileika barnsins sem annars kæmu ef til vill ekki upp á yfirborðið.
Heilsuleikskólinn Skógarás hefur unnið eftir þjálfunar – og leikjaáætlun sem heitir YAP eða Young athlete program. YAP – er verkefni á vegum alþjóðasamtaka Special Olympics, sem hefur að markmiði að efla hreyfiþjálfun og bæta hreyfifærni barna með sérþarfir. Sérstök áhersla er lögð á gildi snemmtækrar íhlutunar.
Frá árinu 2015 er fyrst var byrjað að vinna eftir áætluninni, þá hefur efnið verið aðlagað að hreyfistundum í leikskóla og efnið notað fyrir öll börn leikskólans. Hægt er að kynna sér YAP með þessum tengli: https://resources.specialolympics.org/sports-essentials/young-athletes


