Innra mat í leikskóla er liður í stöðugri þróun og gæðastarfi þar sem starfshættir eru reglulega skoðaðir, greint hvað gengur vel og hvað má bæta og teknar ákvarðanir um umbætur á grundvelli niðurstaðna. Matið byggir á markmiðum og gildum laga, aðalnámskrár og skólanámskrár og er samofið daglegu starfi, ígrundun starfsfólks og samstarfi við foreldra.
Langtíma matsáætlun skólans gerir ráð fyrir að meta:
- 2026-2027 leikskólabrag og foreldrasamstarf
- 2027-2028 uppeldis og menntastarf
- 2028-2029 stjórnun
- 2029-2030 innra mat
- Heilsustefnan metin annað hvert skólaár
- þróunarverkefnið Heillaspor metið reglulega á innleiðingartímabilinu (2026-2028) og í tvö ár á eftir.
- Líðan og ánægja barnanna í skólastarfinu er skoðuð árlega ýmist með könnunum og á barnaþingum.
- Tengsl og samskipti barna eru metin árlega.
- Endurmat á einstaka þáttum skólastarfsins er reglulega yfir skólaárið og/eða eftir atvikum
Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins 2026


