news

Fögnum nýju ári

06. 01. 2026

Gleðilegt ár, kæru foreldrar. Við viljum þakka ykkur innilega fyrir afar ánægjulegt og gefandi samstarf á liðnu ári. Það er okkur sönn ánægja að vinna með ykkur að farsæld og vellíðan barnanna, og við hlökkum til að takast á við nýjar og spennandi áskoranir á nýju ári.

Í dag áttum við einstaklega skemmtilega uppákomu hér í Skógarási þegar börn og starfsfólk komu saman í salnum til að kveðja þessi dásamlegu jól. Allir mættu með hatta af ýmsum gerðum og litum, og skapaði það glaðlega stemningu sem féll einstaklega vel að þessum síðustu jólastundum.

Við dönsuðum saman, hlógum og nutum þess að vera saman — og það var greinilegt að bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega.

Við hlökkum til áframhaldandi samveru og gleði á nýju ári.

© 2016 - Karellen