news

Eldstæði að gjöf frá foreldrafélagi skólans

08. 04. 2022

Foreldrafélagið kom færandi hendi með eldstæði að gjöf fyrir leikskólann. Það hefur verið draumur hjá okkur kennurum skólans að eignast eldstæði til að eiga góðar stundir með börnunum við ýmsar uppákomur. Við vígðum eldstæðið í dag föstudag í dásemdarveðri þar sem við poppuðum í sérstakri poppkörfu sem fylgdi eldstæðinu og sungum saman nokkur lög við eldinn. Börnin höfðu mjög gaman að uppákomunni og kennararnir líka. Við hlökkum til að njóta svona stunda saman við eldinn í framtíðinni. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.


© 2016 - Karellen