Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Skógarási í dag, 14. nóvember, þar sem komið var saman til að fagna íslenskunni með sameiginlegum söng og gleði. Salurinn var skreyttur með íslenska fánanum og litlum ljósum í rauðu, hvítu og bláu í anda fánans, sem skapaði hátíðlega og hlýja stemmningu fyrir þennan mikilvæga dag.
Dagur íslenskrar tungu er einn fánadaga Íslands og er haldinn á fæðingardegi hins fræga skálds og náttúrufræðings Jónasar Hallgrímssonar. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Þann dag eru árlega veittar viðurkenningar og verðlaun fyrir störf í þágu íslensks máls.
Saga dagsins
Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands haustið 1995 að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Í framhaldi af því fór mennta- og menningarmálaráðuneytið að beita sér árlega fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgaði þennan dag rækt við það.
Með þessu átaki beindist athygli þjóðarinnar að stöðu íslenskunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu. Dagur íslenskrar tungu var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar lögðu þá hönd á plóg og efndu til viðburða af þessu tilefni. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hélt hátíðarsamkomu og veitti þar í fyrsta sinn verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar.
Hver var Jónas Hallgrímsson?
Skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson, sem lifði árin 1807-1845, var með lærðustu mönnum síns tíma. Hann var með guðfræðipróf, stundaði nám í lögfræði og lauk síðar prófi í náttúruvísindum frá Kaupmannahafnarháskóla. Jónas fór í rannsóknarferðir um Ísland og skrifaði dagbækur og skýrslur um íslenska náttúru. Auk vísindastarfa var Jónas virkur í útgáfu tímaritsins Fjölnis, hann orti fjölmörg kvæði, samdi sögur og þýddi erlend skáldverk yfir á íslensku.
Sérstaklega mikilvægur dagur fyrir Skógarás
Dagur íslenskrar tungu er Skógarási sérstaklega mikilvægur þar sem skólinn heldur íslenskunni á lofti í fjölmenningarumhverfi sínu og hefur mótað sína eigin málstefnu. Þar sem áhersla er á að íslenska sé höfð í forgangi sem skólamál leikskólans. Í dag kom skólasamfélagið saman til að sýna virðingu fyrir íslenskri tungu og fagna þessu mikilvæga menningararfi með gleði og samstöðu.
