news

Afmælisveisla fyrir Blæ bangsa

02. 02. 2026

Í morgun héldum við hátíðlega upp á afmæli Blæs bangsa. Fyrir afmælið lituðum við myndir fyrir Blæ og bjuggum til afmæliskórónur fyrir þá. Í veislunni sungum fyrir Blæ lög sem tengjast vináttu og svo auðvitað afmælissönginn líka. Blær er orðinn 12 ára, en hann er hluti af vináttuverkefni Barnaheilla sem snýr að því að börnin æfa sig í samkennd, tillitsemi og vináttu. :)

© 2016 - Karellen