news

Jólafrétt Krumma

22. 12. 2023

Góðan daginn kæru foreldrar. Við höfum gert ýmislegt saman á Krumma þessa seinustu viku fyrir jól og fórum meðal annars í vettvangsferð á þriðjudaginn. Við tókum strætó í Krossmóa til þess að skoða jólaskreytingarnar þar og fengum okkur heitt kakó og piparkökur. Ferðin gekk mjög vel og hlökkum við til þess að fara saman í fleiri vettvangs- og gönguferðir á nýju ári. Gleðilega hátíð og hafið það sem allra best saman :)

Einnig höfum við gert margt annað skemmtilegt í leik og starfi, bæði tengt jólunum og ekki. Hér má sjá myndir :)

© 2016 - Karellen